Í flóknum samtíma þarf stóra myndin að vera í fókus og þjónustan þarf að henta hverjum viðskiptavin og hverju verkefni. Við veitum svipaða þjónustu og ráðgjafa-, samskipta-, hönnunar- og auglýsingastofur en styrkur okkar er sá að hér eru allir þessir þættir sameinaðir undir einu þaki.

Um okkur

Hjá Aton veitum við ráðgjöf og þjónustu um allt sem snýr að samskiptum fyrirtækja og stofnana.

Heimurinn verður flóknari með hverjum deginum og upplýsingaáreiti eykst samhliða því. Skýr stefna í rekstri og samskiptum verður því sífellt mikilvægari fyrir fyrirtæki og stofnanir. Ekki er lengur hægt að reiða sig á það sem virkaði í gær til að ná til fólks í dag.

Árangur til lengri tíma byggir á skýrri stefnu og markmiðum og við trúum því að öll samskipti eigi að vera í samræmi við stefnuna og markmiðin. Samskipti verða að þjóna tilgangi, hvort sem það er að afla stuðnings við ákveðið verkefni eða málstað, auka sölu á vöru eða þjónustu eða vernda orðspor á erfiðum tímapunkti.

Þess vegna hefst öll okkar vinna á því að greina þarfir viðskiptavinarins ítarlega, skilja markmið sérhvers verkefnis og setja niður skýra stefnu að því markmiði. Til þess höfum við ýmis tól sem við lögum að hverju verkefni, og má þar nefna náið samstarf við samstarfsfyrirtæki eins og Breytu, Gallup og Optima.

Við setjum saman sérvalið teymi til að leysa hvert verkefni sem við fáum í hendur með fjölbreyttum hópi sérfræðinga sem hefur víðtæka þekkingu á atvinnulífi, skapandi greinum, stjórnsýslu, stjórnmálum, fjölmiðlum, markaðssetningu og vörumerkjaþróun. Þegar greiningu er lokið og stefnan er skýr getum við leyft okkur að treysta innsæinu, finna óvæntar tengingar og sníða lausnir sem geta jafnvel verið handan rökhugsunar.

Forsenda þess að geta hugsað út fyrir rammann er að skilja hvað er inni í rammanum. Við bjóðum jafnt upp á ráðgjafaþjónustu með skapandi ívafi, sem og hönnunar og auglýsingaþjónustu sem er byggð á ítarlegri greiningarvinnu og markvissri stefnumótun.

Hjá Aton veitum við ráðgjöf og þjónustu um allt sem snýr að samskiptum fyrirtækja og stofnana.
Hero image
Greining

Felst í að hlusta á og skilja 
viðskiptavininn og samfélagið

Hagaðilagreining

Það er nauðsynlegt að hafa skilning á öllum þeim sem geta haft áhrif á fyrirtæki eða stofnun og hvernig best er að eiga í samkskiptum við þau. Nákvæm greining á hagaðilum skilgreinir og flokkar þá og út frá greiningunni má skipuleggja samskiptin, hvað þarf að hafa sérstaklega í huga, hvernig móta skal samskiptin að einstökum hagaðilum og hvar er best að þau fari fram.

Fjölmiðlagreining

Fjölmiðlagreining greinir umfjöllun í fjölmiðlum, og metur samspil frétta og viðbragða á samfélagsmiðlum. Þannig fáum við skýra mynd af ógnum og tækifærum í samstarfi við systurfélagið dAton sem býður sjálfvirka vöktun, nákvæma greiningu gagna, viðhorfsgreiningar og sérlausnir.

Vöktun

Vöktun fjölmiðlaumfjöllunar fer fram bæði með hugbúnaði og hefðbundinni greiningu. Þannig öðlumst við skýra yfirsýn yfir umfang umfjöllunar, leggjum mat á innihald hennar sem og viðbrögð almennings. Slík innsýn er ómetanleg til að festa reiður á umræðunni um leið og hún fer fram.

Markaðsgreining

Í öllum samkeppnisrekstri er grundvallaratriði að þekkja vel markaðinn sem fyrirtæki starfar á, hegðun og væntingar viðskiptavina, sem og styrkleika og veikleika keppinauta. Hnitmiðuð markaðs- og samkeppnisgreining, að viðbættri markhópagreiningu, leggur grunninn að stefnumótun til framtíðar.

Stefnumótun

Leggur línurnar og skilgreinir markmið og árangur

Vörumerkjastefna

Allt sem fyrirtæki gera er hluti af vörumerki þess og mótar upplifun viðskiptavina. Með vörumerkjastefnu mótum við ekki bara ásýnd fyrirtækisins heldur tón og talanda á öllum miðlum; alla upplifun viðskiptavina á sem flestum snertiflötum fyrirtækisins.

Samskiptastefna

Samskiptastefna tekur á öllum helstu hagaðilum sem þú þarft að eiga í samskiptum við og mótar hvernig samskipti fara fram. Með góðri samskiptastefnu, framkvæmd og eftirfylgni sköpum við upplifun þar sem fyrirtækið eða stofnunin talar alltaf út frá sama grunni í fjölmiðlum, í markaðsefni, útgefnu efni og hvar sem er.

Fyrirtækjastefna

Skýr stefna með fastmótuð og mælanleg markmið er besta leiðin til að hámarka nýtingu takmarkaðra auðlinda og tryggja velgengni til lengri tíma. Við hjálpum fyrirtækjum og stofnunum að móta framtíðarstefnu, hvort sem um er að ræða rótgrónar stofnanir eða nýstofnuð fyrirtæki.

Sköpun

Að gera hugmyndir að veruleika og ná alvöru tengingu við fólk

Auglýsingar

Auglýsingar sem byggja á góðri mörkun, stefnu og samskiptaáætlun segja sögu sem kemur viðskiptavininum við og hittir hann fyrir bæði á réttum stað og tíma. Þannig fæðast skapandi hugmyndir sem hafa áhrif og skila raunverulegum árangri.

Hönnun

Vel úthugsuð hönnun, í auglýsingum, í umhverfismerkingum, í kynningum, skýrslum og hvar sem vörumerkið þitt birtist er mikilvæg leið til samskipta. Góð hönnun (eða það sem er góð hönnun fyrir þitt fyrirtæki, málstað eða frásögn) snýst ekki um yfirborð eða stíl; hún er í grunninn birtingarmynd hugmynda, markmiða og gilda, fær um að miðla flóknum hugmyndum á augnabliki, bæði meðvitað og ómeðvitað.

Stafræn miðlun

Vefþróun, rafrænar ársskýrslur, stafræn framsetning gagna eru dýrmætar birtingarmyndir þess sem þú hefur að segja. Aton sinnir vefforritun og ýmiss konar stafrænni þróun, á eigin vegum eða í samstarfi við aðra sérfræðinga og gætir þess að vörumerki, tónn og samkiptastefna skili sér alla leið.

Kvikmyndagerð

Sumt er ekki hægt að segja með orðunum einum saman. Kvikar myndir – stuttar, langar, leiknar, teiknaðar, í sjónvarpi, kvikmyndahúsi eða á samfélagsmiðlum – hafa aldrei verið mikilvægari miðill. Þess vegna höfum við lagt áherslu á að hafa fólk með þekkingu og reynslu af kvikmyndagerð allt frá upphafi.

Hugmyndir og greinar

Stundum er besta leiðin til að miðla hugmynd blaðagrein, hlaðvarpsþáttur eða ræða. Hnitmiðað og skýrt ritað efni sem unnið er með skilgreint markmið í huga og þekkingu á viðfangsefninu getur skapað umræðu, sannfært fólk um að taka rétta ákvörðun og byggt upp gott orðspor.

Almannatengsl

Góð samskipti í fjölmiðlum og á eigin miðlum eru dýrmætt verkfæri til að koma boðskap á framfæri við almenning og hafa frumkvæði að breytingum. Almannatengsl fara fram á grundvelli samskiptaáætlunar. Þannig miða þau alltaf að réttu marki út frá skýrum forsendum og auðvelda okkur að halda stjórn á hlutunum.

Bein samskipti

Bein samskipti eru stundum besta leiðin til að hreyfa við hlutunum og upplýsa fólk milliliðalaust. Mikil þekking innan Aton á stjórnmálum, opinberri stjórnsýslu og atvinnulífinu getur orðið mikilvægur þáttur í að koma þínum skilaboðum á framfæri á réttan hátt við réttan aðila.

Ráðgjöf

Þegar aðstæður kalla á utanaðkomandi sérþekkingu og innsæi

Fjárfestatengsl

Góð tengsl við fjárfesta, viðskiptafjölmiðla og markaðinn skipta lykilmáli þegar fyrirtæki á markaði byggja upp tengsl og orðspor. Fjárfestar og eigendur geta líka verið þínir helstu talsmenn þegar samskiptin milli fyrirtækis og markaðar eru góð og opin.

Framkomuþjálfun

Vel undirbúin framkoma í fjölmiðlum eða opinberlega skapar tækifæri og hjálpar okkur að forðast ógnir. Framkomuþjálfun með reyndum ráðgjöfum undirbýr þig fyrir framkomu í fjölmiðlum, viðburði og fundi svo ekkert komi á óvart eða verði eftir í hita leiksins.

Krísustjórnun

Góð krísustjórnun hefst þegar allt gengur í haginn. Það er mikilvægt að hafa skýra stefnu um það hvernig skal bregðast við þegar krísur eiga sér stað. Við aðstoðum samt líka, hratt og örugglega, þegar eitthvað algjörlega ófyrirséð bankar upp á.

Stjórnendaráðgjöf

Vel undirbúin svör, viðbrögð og lykilpunktar ásamt þjálfun í framkomu geta skipt sköpum þegar kemur að því að takast á við flókin mál. Þar getur sértæk ráðgjöf komið að miklu gagni en við veitum einnig ráðgjöf til samninganefnda og í samningatækni.

Innri samskipti

Það skiptir máli að starfsfólk sé upplýst um starfsemi og stefnu fyrirtækisins og að stjórnendur séu í góðum tengslum við líðan og skoðanir starfsfólks. Þannig upplifa allir sig hluta af heildinni og verða samherjar í að framfylgja sýn. Fyrirtæki og stofnanir sem eiga góð innri samskipti eru eftirsóknarverðari vinnustaðir í harðri samkeppni um gott fólk.

Fjölmiðlasamskipti

Regluleg samskipti við fjölmiðla eru betri þegar þeim er fylgt eftir með skýrum og skipulegum hætti. Fjölmiðlalandslagið breytist stöðugt og því getur skipt lykilmáli að þekkja réttar boðleiðir þegar kemur að því að eiga í beinum samskiptum við fjölmiðla.